26.01.2009 18:19:33 / Egill
Þá er þetta alveg búið. Ég er kominn heim frá Keele, reyndar er að verða vika síðan. Skólinn byrjaður á fullu, ég segi á fullu, en taflan mín er svo frábær að ég er bara tvo daga í viku í skólanum. Það er alveg ótrúlega þægilegt. Er búinn að eyða mestum tíma síðan ég kom heim í að taka því rólega heima á Eyrinni, svona milli þess sem maður hefur arkað niður á Austurvöll og tók smá þátt í að koma stjórninni frá, sem tókst að lokum. Þrefalt Húrra fyrir íslensku þjóðinni, þetta markar merk tímamót í okkar sögu. Ég hef ekkert getað tekið þátt hingað til en það var ótrúlega gaman að fara og sjá hversu margir voru á Austurvelli og stemmningin var gríðarleg. Þetta eru sögulegir tímar sem við erum að upplifa þessa dagana. Mæli með að fólk kíki á síðuna
www.myspace.com/bangsibestaskinn og tékki á laginu sem Teitur bróðir samdi um okkar vanhæfu ríkisstjórn.
Með góðri kveðju
Egill Búi
»
16.01.2009 16:02:43 / Egill
Ég kláraði síðasta prófið mitt í dag, og þýðir það bara eitt, þessum áfanga í mínu lífi er lokið. Honum líkur reyndar ekki fyrr en á mánudaginn þegar ég fer útá flugvöll og flýg heim á leið. Er búinn að eyða deginum í dag í að horfa á kvikmynd og svo að lesa The Crow, og bæði ansi gott. Í kvöld ætlum við svo allir skiptinemarnir að hittast og að fara út að borða, og svo verður restin af helginni öruggulega notuð í það að fara í verslunarferð, eina svona lokaferð og sjá hvort að það sé eitthvað sem mann langar í sem maður hefur ekki enþá fest kaup á.
Meira um þetta seinna, þegar ég verð kominn heim
Egill Búi
»
10.01.2009 00:53:38 / Egill
Þá er ég kominn aftur til Keele og er ánægður með það, fyrir utan að það er frekar kalt, og þar sem að rakinn er töluvert meiri hér þá nístir kuldinn inn að beini. En ég er með ullarpeysu með mér, þannig að ég er nokkuð góður.
Sæl að sinni
Egill
»
03.01.2009 12:14:12 / Egill
Smá update
Síðan síðast hefur fullt gerst. Nenni ég að tala um það allt hér? Nei.
Fór til Írlands; það var geðveikt gaman. var í skólanum; ekki alveg jafn gaman, verlsunarferðir til bæði Manchester og London; báðar mjög skemmtilegar, bökuð kartafla með osti og bökuðum baunum; Anna þú veist hvað ég er að tala um, kom heim um jólin og hitti vini og fjölskyldu; alltaf nauðsynlegt af og til, hljómsveitaræfingar; mér er illt í puttunum, er á leiðinni út bráðlega aftur; hlakka verulega mikið til þess.
Þetta var fyrir þig Anna Margrét; ekki meira diss
Kveðja
Egill Búi
»
22.11.2008 21:19:46 / Egill
Guðdómlegt, yfirnáttúrulegt, ólýsanlegt.
Sigur Rós í London í gær. Ekkert nema snilldin ein, þið sem eruð að fara á morgunn í höllina eigið von á góðu.
»
12.11.2008 22:56:42 / Egill
Fjöll í austri fagurblá
freista dalabarnsins.
Ungur fylgir æskuþrá
upp til jökulhjarnsins.
Sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi,
víða stríða þræddi þá
þunga hraunavegi.
Heiðin breiða hugumkær
hvetur viljann ofar.
Leiðin seiðir, fráum fær,
fögrum sýnum lofar.
Gangan sækist öruggt enn
urðarróti móti.
Einatt hlutu heiðamenn
höggvinn fót á grjóti.
Hver, sem ofar á að ná,
einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
fjúk og hretið betur.
Anda heitum yndi nóg
unaðsreitir geyma.
Seinna leitar þráin þó
þinna sveita heima.
Ef
þið eigið þess kost að hlusta á samtarf Sigur Rósar og Steindórs
Andersen þá mæli ég eindregið með að þið komið því í verk. Fögur
tónlist og rímur kveðnar á gamla mátann, það gerist vart betra en það.
»
04.11.2008 14:07:37 / Egill
Sælt veri fólkið. Fannst eins og það væri tímabært að henda inn eins og einni færslu. Orðið frekar lang síðan síðast. Málið er bara það að hlutirnir eru orðnir það hversdagslegir hér að mér finnst vart vert að tala um þá. Ég er samt búinn að gera alveg fullt skemmtilegt síðna síðast. Fór til dæmis í skemmtigarð og fór í mína fyrstu rússíbanaferð, það var alveg hörkufínt. Fór í fullt af skemmtilegum tækjum. Fékk reyndar nett "flashback" þegar við fórum í fyrsta tækið þann daginn. Það var róla. Ég þoli ekki rólur, og róla var einmitt það fyrsta sem ég fór í í skemmtigarði í Þýskalandi. Í bæði skiptin var það óvart, þó ótrúlegt megi virðast. En sem betur fer hef ég greinilega byggt upp eitthvað þol gegn rólum því að dagurinn var ekki alveg ónýtur eins og forðum daga í Þýskalandi. Eftir róluna fórum við í bátsferð um töfraveröld Charlie and the Chocolate Factory, sem var mjög gott til að jafna sig eftir róluferðina. Við röltum um garðinn, sem var verulega flottur, ekki bara skemmtigarður heldur líka nokkurskonar listigarður þar sem maður gat labbað um í rólegheitum og skoðað náttúruna. Svo tók Oblivion við, þurfum ekkert að ræða það frekar.
Ég fór líka til Wales að skoða kastala. Verulega flottan kastala. Við löbbuðum um inní í kastalanum og allt var verulega flott þar inni. Sérstaklega bókahillurnar sem þöktu heilu veggina og náðu alveg uppí loft, og það í fleiru en einu herbergi. Svo skoðuðum við garðinn í kring, garður í barrokk stíl ef mér skjátlast ekki, reglulega fallegur.
Það er svosem ekki mikið annað að frétta. Er búinn að upplifa "thanksgiving" og "holloween" allt reglulega gaman. Svo fer ég til Oxford næstu helgi, það verður án efa mjög skemmtileg ferð. Mjög gott framtak hjá skólanum að bjóða alþjóðanemendunum uppá svona ferðir. Þær kosta ekki mikið og gefa okkur færi á að skoða merkilega staði sem eru hérna í kring. Við fengum smá snjó hérna um daginn. Eitthvað sem ég bjóst ekki við að sjá. Innfæddir segja að það snjói nánast aldrei hérna, og þá er það helst bara örlítið í janúar. Það voru nú ekkert allir jafn sáttir með snjóinn, en við Íslendingarnir og Kanadabúarnir vorum yfir okkur ánægð.
En núna ætla ég að fara að lesa Shakespeare leikrit. Það er ekki bara eintóm sæla að vera hérna úti, það fylgir líka lærdómur.
Með góðri kveðju
Egill Búi
»
10.10.2008 12:15:56 / Egill
Að fá frí á föstudögum hefur aldrei þótt neitt slæmt frá mínum bæjardyrum séð. Það er einstaklega þægilegt að geta tekið fimmtudag rólega, og ekki stressa sig yfir skóla næsta dag, eða þá að nota fimmtudaga í að vaka frameftir og horfa á vídjó eins og ég gerði í gærkvöld. Fórum á einn pöbb, en enduðum svo inni í herbergi hjá einu af okkur og horfðum á mynd. Svo tekur föstudagur við og engar áhyggjur. Ég fór áðan og keypti mér miða í Alton Towers skemmtigarðinn, sem á víst að vera sá besti á Englandi. Ég held ég láti það samt vera að fara í stærstu rússibanana, þeir eru ekki alveg mín sterkasta deild. En kanski finnur maður sér eitthvað annað til að fara í, Rússneska sleðaferð eða eitthvað jafn sniðugt. Svo fer ég til Wales í næstu viku að skoða kastala, það verður örugglega mjög gaman. Ég mæli með að þið gúgglið "Powis Castle" og skoðið myndir. Þetta lítur alveg heljar vel út.
Í gær fékk ég mitt eigið herbergi. Ég er samt ekki fluttur út þar sem að Guy herbergisfélagi minn fór að efast um hvort mér þætti vænt um hann lengur og sagði að ég ætti að vera hérna fram yfir helgi. Það er minnsta mál í heimi þar sem að okkur kemur mjög vel saman. Nýja herbergið er alveg ágætt, töluvert minna en það sem við erum með núna og ég hef ekki vask, en ég held að það ætti nú alveg að reddast. Veggirnir eru úr múrsteinum. Stórum múrsteinum sem er ekki búið að klæða yfir og rifurnar á milli steinanna eru mjög greinilegar, sem gefur þessu svona smá fangaklefa lúkk, og ekki bætir úr skák að veggirnir eru alveg hvítir og auðir. En maður kaupir sér kanski eitthvað til að setja á þá og gefa herberginu smá lit. Ég verð enþá á sama svæði á kampusnum, en ég fer í annað hús sem er soldið frá þeim stað þar sem ég er núna.
Ég kveð að sinni og læt heyra aftur frá mér við fyrsta tækifæri, jafnvel með myndir frá Alton Towers og kastalanum í Wales.
Með kærri kveðju
Egill Búi
»
05.10.2008 23:16:22 / Egill
Í dag er sunnudagur. Í dag var sko sannarlega sunnudagur. Ég hef varla farið út úr húsi, frekar en nokkur annar. Nema Guy sem fór á rugby æfingu. Það getur verið ansi gott að slaka bara á. Las fyrir endurreisnarbókmenntirnar, alveg nokkuð áhugavert efni, las ljóð eftir Wyatt og fleiri. John stakk uppá því að við kíktum til Manchester í dag, en ekkert varð af því, sem var alls ekki svo slæmt. Við ætluðum að fara seinnipartinn í dag, en það er ekkert opið á sunnudögum. Engar verslanir og ekki neitt, þannig að þessari ferð var slegið á frest. En mig hlakkar samt mikið til að fara til Manchester, ég er búinn að finna risastóra hljóðfæraverslun þar og sá á heimasíðunni þeirra að þeir selja akkúrat bassa eins og mig langar í. Og það sem meira er, þá er hann helmingi ódýrari en heima, og þá er ég að tala á núverandi gengi krónunnar. En ég verð bara að sjá til hvað ég geri, mig langar alveg skuggalega að kaupa mér nýjann bassa og þarf eiginlega að gera það (ég tel mér sjálfum trú um það allavega). John fékk gítarinn sinn síðasta föstudag og hann var svo ánægður að fá hann, enda elskar hann gítarinn sinn meira en flest annað. Við vorum að spjalla í gæri og honum sagðist leiðast svo mikið, og bætti við að það væri fínt ef ég væri með bassa því að þá gætum við spilað "sweet music" saman. Ég held að ég eigi líka eftir að fara yfir um ef ég spila ekkert í 3 mánuði.
Í kvöld hittumst við svo í eldhúsinu okkar Guy og elduðum pasta og kartöflumús sem var mjóg góð, og að sjálfsögðu fékk ég mér tómatsósu á mína, enda elska ég tómatsósu. En það jafnast samt ekkert á við kartöflumúsina hans pabba. Það er án nokkurs vafa besta kartöflumús sem ég hef nokkurtíma smakkað.
Á morgunn er svo tími klukkan 11. Það ætti að vera nokkuð auðveldur tími enda bara að horfa á vídjó. Hvað er betra á mánudagsmorgni en að þurfa að fara í tíma og það er barja vídjógláp. Það finnst mér nokkuð þægilegt. Þetta er nú einusinni Disney áfangi og þá er nú ekki skrýtið að við fáum að horfa á einhverjar myndir.
Vonandi hef ég frá einhverju merkilegra að segja næst þegar ég skelli einhverju hérna inn, en þetta verður bara að duga í bili. Svo skal ég vera duglegri að taka myndir. En það er bara ekkert sérstaklega skemmtilegt að taka myndir í rigningu.
Með góðri kveðju frá Bretaveldi
Egill Björgvinsson
»
03.10.2008 11:41:21 / Egill
Þá er liðin ein vika frá því að maður kom hingað til Englands. Vika og einn dagur réttara sagt, en fyrsti dagurinn getur varla talist með þar sem að við komum seint og gerðum ekki margt fyrir utan að bíða og sitja í rútu. Borðuðum jú pizzu og fórum í göngutúr, en það var svo dimmt að við vissum ekkert hvar við vorum eða hvert við stefndum. Ég er nú búinn að labba aðeins um svæðið í dagsbirtu og hef tekið nokkrar myndir og þær má finna á linknum "myndasöfn" hér vinstra meginn efst á síðunni. Þær eru nú ekki margar eins og er, en ég reyni að bæta úr því, þarf að fá mér einhverja myndasíðu til að geta sett inn myndir sem eru í stærri kanntinum, ekki þessar litlu sem komast fyrir hér á blogcentral.
Margt er búið að gerast á þessari viku og er hún búin að vera mjög ánægjuleg. Við erum búin að fara út að borða tvisvar en þess á milli hefur Grikkin hann John verið svo elskulegur að elda ofan í okkur, fyrir utan eitt kvöld, þá elduðu Kate, Anna og Guy (ég hjálpaði líka aðeins) og við buðum John í mat. Ef að hann eldar þá borðar hann ekkert og okkur fannst tímabært að einhver annar myndi sjá um að elda svo að hann gæti borðað eitthvað. Ég held að hann hafi verið mjög þakklátur fyrir það. Við fórum í bíó um daginn og sáum myndina 'The Duchess'. Ágætis mynd, sorgleg, nokkuð kómísk á köflum og ég held að Guy, sem var búinn að bíða spenntur í marga daga eftir að sjá þessa mynd, hafi bara verið nokkuð sáttur. Deginum áður en við fórum þá sagði hann alltaf, "tomorrow we go and see The Duchess". Hann var gríðar spenntur yfir þessu öllu, og svo um nóttina þá dreymdi honum um myndina.
Ég skráði mig í nokkrar ferðir sem verða farnar á vegum skólanns á hina ýmsu staði. Jólamarkað í Lincolnshire, Oxford og svo einnig að skoða gamlan kastala í Wales. Það verður amazing, eins og Guy myndi segja. Við köllum hann Captain Amazing af því að annaðhvert orð sem kemur uppúr honum er 'amazing'. Allt er amazing, sama hvað það er. Ég hlakka mikið til að fara í þessar ferðir, það verður gaman að skoða meira af Englandi og ég held að þessi jólamarkaður verði alveg frábær. Hann er víst í mjög gömlum bæ og á held ég að líta út eins og þetta var í gamla daga. Svo er farinn ferð til London um miðjan desember til að skoða London í jólaskapi. Ég er ekki búinn að skrá mig í þá ferð, en það getur vel verið að maður geri það við tækifæri. Það fer bara allt eftir ferðahögum mínum um jólin. Wales ferðin verður örugglega líka mjög skemmtileg, alltaf gaman að koma til nýrra landa. Þetta verður nú bara dagsferð, en það er sama. Við förum og skoðum gamlan kastala og höfum það gaman.
Ég er búinn að fara á kynningarfyrirlestra í þeim tímum sem ég er skráður í og þetta lítur bara mjög vel út. Áfangarnir hljóma spennandi og kennararnir virka mjög vel á mig, allavega þeir sem ég er búinn að hitta hingað til. Bekkirnir eru frekar fámennir þannig að þetta verður bara svipað andrúmsloft og heima á klakanum. Ég bjóst alveg eins við að sitja einhverja risa fyrirlestra með geðveikt mikið af fólki, en svo verður ekki.
Vistin lítur líka vel út, herbergið okkar Guy er alveg nokkuð stórt, fínt fyrir okkur báða, þó svo að ég búi enþá í ferðatöskunni minni. En ég flyt víst einhvertíma út, ég veit ekki hvenær og ég hef ekki hugmynd um hvert, en það ætti allt að koma í ljós innan skamms.
Ég kveð að sinni (og um leið og ég er búinn að finna út hvernig þú getur skrifað mér Dagur, þá læt ég þig vita)
Með kærri kveðju
Egill Búi
»
30.09.2008 11:13:59 / Egill
Sælt veri fólkið. Loksins kom ég tölvunni minni í netsamband, og að
sjálfsögðu var það ekki jafn flókið og ég bjóst við því að það væri.
Bjóst við að þurfa að biðja um hjálp hjá IT service, en nei, mér tókst
að redda þessu með svona fjórum klikkum á músina mína.
Ég er
semsagt búinn að vera hérna í 5 daga eða svo. Fyrsti dagurinn fór
reyndar aðeins öðruvísi en reiknað hafði verið með. Ég og Anna Margrét
lentum frekar snemma á Heathrow flugvelli á fimmtudagsmorgninum en
vegna seinkunna á öðrum flugum þá seinkaði rútuferðinni um einhverja
tíma og við biðum í, að ég held fjóra klukkutíma á flugvellinum. Svo
tók við rútuferð uppá nokkra klukkutíma svo að við vorum ekki komin
uppí skóla fyrr en um 8 eða hálf níu. Þessi bið var þó ekki alslæm því
að þarna hristust saman hópur skiptinema og við erum búin að kynnast
fullt af góðu fólki hér. Fólk frá ýmsustu stöðum; Belgíu, Hollandi,
Kamerún, Grikklandi, Kanada(bæði frönskumælandi og enskumælandi) svo að
það má segja að við séum mjög alþjóðlegur hópur.
Við erum búin að
bralla ýmislegt og fara á fyrirlestra sem voru mjög svo mis
skemmtilegir og búin að fá allskonar blöð og bæklinga um allt og ekki
neitt.
Ég fór og reddaði stundatöflunni minni í gær, það tók alveg
langann tíma, enda var ekkert vesen með hana, engir árekstrar eða
neitt. Ég bjóst alveg eins við einhverju veseni þar sem ég er í einum
áfanga sem er fyrir annars árs nema og öðrum fyrir þriðja árs og það
getur oft valdið vandræðum. En það var allt í góðu. Ég fór líka á
heilsugæsluna til að skrá mig, það tók líka mjög langan tíma. Ég fékk
mér flensusprautu og fékk líka að vita að ég var með of háann
blóðþrýsting. En hún sagði að það gæti verið útaf öllum þessum
breytingum og ég pantaði tíma eftir mánuð í endurtékk á blóðþrýstingi.
Ég
er búinn að taka eitthvað af myndum hérna, en hef ekki enþá sett þær
inná tölvuna. En þetta kemur alltsaman með tímanum, sjáiði bara til.
Ég
læt ykkur vita ef eitthvað markvert gerist hér úti, ég lofa því, og það
á án nokkurs vafa eftir að vera eitthvað skemmtilegt. Hendi jafnvel inn
myndum við tækifæri.
Með kærri kveðju frá Keele
Egill Búi
»
27.09.2008 20:58:25 / Egill
Tà er madur kominn til Keele. Vildi bara làta vita af mèr. Hèr eru allir voda nice og skòlinn lìtur vel ùt. Er nùna ì tolvu herbergisfèlaga mìns, hans Guy sem er frà Belgìu og tad er alveg frekar skrìtid ad skrifa à hana, ekki bara af tvì ad tad eru ekki ìslenzkir stafir heldur lìka af tvì ad stafupprodunin à lyklabordinu er ekki sù sem vid eigum ad venjast og tolvan er à fronsku. Èg veit ekki hvenaer èg fae mitt eigid herbergi, en tetta er alveg frekar nice svona, enda er Guy alveg gull af manni. Èg kem med nànari ùtlistun à tvì sem à daga mìna hefur drifid tegar èg get skrifad almennilega, tetta blogg tòk margfaldann venjulegan tìma ad skrifa. Èg er bùinn ad taka ìslenzka sìmakortid mitt ùr sìmanum, svo ad tad dugar lìtid ad reyna ad hringja ì tad. Laet ykkur vita med framhaldid.
Med gòdri kvedju frà Englandi
Egill Bùi (aka Hulk)
»
22.09.2008 11:55:49 / Egill
Tónleikarnir á föstudaginn heppnuðust bara nokkuð vel, allavega þótti mér þetta alveg ansi gaman og stórt takk til þeirra sem komu og kíktu á okkur og hjálpuðu okkur með þetta allt saman.
Tregablandin stund þegar spilamennsku var lokið, síðustu tónleikarnir á þessu ári sem var frekar sorglegt, en á hinn bóginn þá heppnaðist þetta svo vel að maður gat ekki annað en verið ánægður með þetta.
Nú tekur bara skóli við, frekar skrýtið að það sé að koma október og maður hefur ekkert verið í skólanum. En svona vilja Bretarnir víst hafa þetta og ég get víst lítið gert í því. Það er alveg talsverður spenningur farinn að gera vart við sig, með hæfilegum skammt af kvíða og stressi. En ég efa það ekki að þetta verði alveg hörku gaman, enda hefur mig langað til að fara út í skiptinám í talsverðan tíma og maður er alveg á síðasta snúningi með það núna.
Ég flýg út snemma á fimmtudagsmorgunn, þannig að það eru rétt tveir dagar eftir hérna heima og ég er að reyna að hnýta siðustu lausu endana, pakka ofan í tösku og gera viðeigandi ráðstafanir.
Ég lofa að láta heyra frá mér þegar ég er kominn út, kveð í bili.
Verið þið blessuð og sæl
Egill Bú
»
17.09.2008 11:43:41 / Egill
Næstkomani föstudag munum við í Sleeps Like an Angry Bear spila á okkar síðustu tónleikum á árinu, eða þangað til að ég kem heim frá Englandi.
Tónleikarnir verða, eins og sagt er í titlinum, í Kaffi Hljómalind föstudaginn 19. september og byrja klukkan 20:00 og það kostar ekki neitt inn. Á tónleikunum munu spila ásamt okkur í Sleeps... hljómsveitirnar Morri, The Deathmetal Supersquad og The Best Hardcore in the World.
Það væri gaman að sjá sem flesta þarna, enda löng pása framundan.
Með góðri kveðju
Egill Búi
»
10.09.2008 22:55:06 / Egill
Er Kings of Leon besta hljómsveit í heimi? Miðað við lögin sem þeir hafa sent frá sér af væntanlegri plötu þá eru þeir á hraðri leið á toppinn. Síðasta plata var snilld, og ef þessi næsta verður eitthvað í líkingu við hana þá verður það stórkoslegt.
Russel Brand gerði greinilega góða hluta á MTV music awards hátíðinni, gerði allt vitlaust og móðgaði víst kanann ansi mikið þegar hann setti útá allt það helst sem er um að vera þar þessa daganna. Sagði að það væri ótrúlegt að Bush væri treyst fyrir forsetaembættinu, því að ef hann væri í Englandi væri honum ekki treyst fyrir skærum. Og svo setti hann víst mikið út á Jonas Brothers, gagnrýni sem mér finnst eiga fullann rétt á sér.
En talandi um England. Í dag eru fimmtán dagar þar til ég fer utan. Reyndar varla svo mikið þar sem ég flýg út frekar snemma um morguninn á fimmtudeginum. Það er komin alveg nett spenna í mann og er ýmislegt sem mann langar að gera þarna úti, svona fyrir utan skóla. Þessi vika verður mín síðasta í vinnunni, og ætla ég svo að reyna að slappa af og reyna að hitta vini og ættingja áður en að ég fer út. Það verður fínt að fá smá frí, þó svo að það sé nú ekki langt, enda er ég kominn á síðustu metrana í vinnuþrauki.
Ég kveð að sinni, og vonandi hitti ég ykkur sem flest áður en ég fer
Endilega bara hafa samband ef þið viljið
»
Síður:
1 2 3 ...
14